Nýr kolvetnalaus áfengur drykkur

Í takt við nýjan lifsstíl er áfengisneysla að breytast. Fólk telur hitaeiningar og forðast kolvetni. Sykur er bannorð og gervisætuefni ber að forðast.

Bliss er svokallaður Hard Seltzer, nánast áfengt sódavatn en slíkir drykkur komu fyrst á markað fyrir nokkrum árum og hafa sprungið út í Bandaríkjunum. Hard Seltzer inniheldur færri hitaeiningar og bragðast vel.

Bliss er með 4,5% áfengisinnihald og bruggað úr gerjuðum ávöxtum sem er blandað saman við kolsýrt vatn og náttúruleg bragðefni. Gerið étur upp allan ávaxtasykurinn og þess vegna er Bliss sykurlaust og kolvetnalaust. Engum sykri eða gervisætuefnum er bætt við Bliss sem hefur ljúffengt milt bragð. Aðeins 27 hitaeiningar eru í 100 ml sem aðgreinir Bliss frá öðrum á þessum markaði.

Keppinautar Bliss blanda vodka í sódavatn, bæta við bragðefnum, fylla af gervisætu og vilja kalla það hard seltzer. Bliss fer aðrar og betri leiðir þar sem gæðin eru aðalatriðið.

Hönnunin á Bliss er frábrugðin öðru líkt og innihaldið, einstök, fáguð með smá húmor í bland með skírskotun til þroskaðri, breiðari markhóps. Þrjár bragðtegundir koma á markað núna: Mandarin Ginger, Basil Lemon Lime og Pink Grape Raspberry. Bliss kemur í 33 cl dósum sem eru grennri og hærri en hefðbundar dósir.

Bliss er þróað og framleitt af íslensku fyrirtæki, Good Spirits Only ehf. og tappað á í Belgíu. Bliss er komið á markað á Íslandi og mun koma í sölu á fjölda markaða í Evrópu á næstu vikum og mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert