Matarbloggarinn og keramikdrottningin Hanna deilir hér með okkur dýrindis uppskrift að silungi í hnetusósu, sem hún segir að bragðist unaðslega.
„Um daginn fór ég á veitingastað erlendis og pantaði mér lax með hnetusósu … og mikið þótti mér hann góður. Nokkrum dögum síðar var ég enn að hugsa um réttinn góða og þá var fátt annað í stöðunni en að prófa sig áfram í tilraunaeldhúsinu. Fyrsta hugsun er kannski að þetta passi nú ekki alveg saman en viti menn – þessi réttur er þrusugóður og höfðar bæði til ungra sem aldinna. Mæli klárlega með þessum rétti.“
Silungur með hnetusósu
Upplagt að búa til sósuna daginn áður eða fyrr um daginn þar sem hún verður bara betri við að standa aðeins. Fyrir þá sem vilja spreyta sig á púrrusnakkinu er fínt að búa það líka til nokkru áður.
Silungur og fleira
Skraut: T.d. ferskt kóriander, púrrulaukur/vorlaukur, límóna, tómatar, gúrka og muldar salthnetur
Hnetusósa
Hnetusósa
Silungur og fleira
Púrrusnakk: Ofninn stilltur á 180–200°C (yfir- og undirhita). Fjarlægið visnaða hlutann af græna hluta púrrulauksins (vorlauksins). Skerið græna hlutann af og skolið. Svo eru blöðin þerruð og pensluð með sataysósunni. Blöðin eru sett í ofnskúffu (bökunarpappír settur í botninn). Góður litur látinn koma á blöðin – frekar dökkur. Borið fram með fiskinum.
Meðlæti: Mér og börnunum finnst voða gott að hafa ramen-núðlur með þessum rétti. Hrísgrjón passa líka mjög vel með en svo er ómissandi að bera fram ferskt kóríander, gúrkubita og límónubáta sem hver og einn kreistir úr yfir réttinn. Ferskar púrru- eða vorlaukssneiðar og púrrusnakkið er einnig fallegt og gott með. Grillað grænmeti spillir svo ekki fyrir.