Svona eru kósíkvöldin hjá Hildi

Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og fagurkeri með meiru.
Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og fagurkeri með meiru. mbl.is/Facebook

Hún er sniðugri en flestir og deilir því með fylgjendum sínum á Instagram. Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt hefur útfært enn eina útgáfuna af kósíboxi sem ætti að falla í kramið hjá eldri kynslóðinni. En við höfum áður sýnt ykkur frá því hvernig hún gerði sambærilegt box fyrir krakka. 

Hér sker Hildur kassa niður og fyllir með alls kyns góðgæti til að fullkomna kósíkvöldið. Kerti, sælgæti, freyðivín, maski, baðbomba og bók er á meðal þess sem finna má í kassanum sem að Hildur útfærði sem afmælisgjöf handa frænku sinni og sló í gegn - og það skal engan undra, enda geggjuð gjöf. Þeir sem vilja fylgjast með Hildi á Instagram, þá má finna hana undir nafniinu Hvassó heima, eða HÉR
mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert