Stórbrotinn kjúklingur með mögnuðu meðlæti

Ljósmynd/Hanna

„Hér kemur einn þrusugóður réttur sem tilvalið er að elda í Hönnupotti.  Kjúklingurinn er hægeldaður og er hann algjört lostæti,“ segir keramik drottningin og matarbloggarinn Hanna um þessa uppskrift.

„Ekki spillir svo meðlætið en karlpeningurinn á heimilinu tók ekki annað í mál en að bjóða líka upp á hrísgrjón. Þeim finnst þau alveg ómissandi til að hella sósunni, sem kemur af kjúllanum, yfir.  Svolítill niðurskurður í meðlætinu en alveg svakalega gott allt saman.“

Hægeldaður kjúlli í potti... algjört lostæti

Kjúklingur

  • 1 kjúklingur
  • 2 msk. blanda af salti, túrmeriki, cayennapipar, hvítklauk og sítrónupipar (U.þ.b. ½ tsk salt, 1 msk túrmerik, tæplega ¼ tsk cayennapipar, 2 – 3 hvítlauksrif (söxuð) og 1 msk sítrónupipar
  • 2 msk. olía

Hunangsgljái

  • ½ tsk. malaður svartur pipar
  • 4 msk. hunang
  • 3 msk. olía
  • 2 msk. balsamikedik
  • 1 hvítlauksrif – saxað eða pressað
  • ½  – 1 ferskur chilipipar eða jalapeno – saxað

Pico de gallo

  • 4 tómatar -skornir í bita og fræhreinsaðir. Svo skornir i minni bita
  • 1 gulur laukur – saxaður smátt
  • 2 stk. ferskur rauður chilipipar – saxaðir
  • 1 tsk. ancho chili eða chiliflögur
  • 2 hvítlauksrif – söxuð
  • ½ rauð eða gul paprika
  • Ein lúka ferskt kóriander – saxað
  • 2 msk. olía
  • Safi úr 1 stk lime

Cuacamole

  • 2 avokadó – mátulega þroskuð (einnig hægt að nota frysta avokadóbita) – maukuð
  • 2 msk. rauðlaukur – saxaður
  • 1 tómatur – skorinn í 4 báta… fræhreinsaður og saxaður niður
  • 1 salatlaukur (eða 2 litlir skarlottulaukar)  – saxaður smátt
  • 2 hvítlauksrif – söxuð eða pressuð
  • Safi úr 1 stk lime
  • 2 msk. ferskt kóriander eða steinselja
  • Salt og pipar

Salat með svörtum baunum

  • 1 rauðlaukur – saxaður smátt
  • 1 – 2 hvítlauksrif – pressuð/söxuð smátt
  • 1 rauður chilipipar
  • 2 msk. olía
  • 400 g svartar baunir – niðursoðnar (safanum hellt frá og þær aðeins skolaðar)
  • Salt og pipar
  • Fersk steinselja eða kóriander

Verklýsing

Kjúklingur

  1. Ofninn hitaður í 115 – 120°C (blástur)
  2. Kryddinu nuddað í kjúklinginn og hann látinn standa og jafna sig í u.þ.b. 20 mínútur. Kjúklingurinn settur í Hönnupott (eða lokað ílát sem þolir að fara í ofn) og olíunni hellt yfir
  3. Lokið sett á og eldað í 3½ klukkustund eða þar til kjúklingurinn fer að ná 75°C. Gott að nota kjöthitamæli (kjúllin þarf að ná 75°C)
  4. Þegar kjúklingurinn hefur verið í rétt rúmar 3 klukkustundir í ofninum er upplagt að hella eða pensla gljáanum yfir hann.  Hitinn er aðeins hækkaður (180°C) og lokið tekið af pottinum til að fá fallegan gljáa á kjúllann. Látið vera í u.þ.b. 10 mínútur í viðbót og penslað aftur. Passa samt að hann brenni ekki

Hunangsgljái

  1. Allt sett í pott og hitað – tekið af hellunni og látið kólna

Pico de gallo

  1. Öllu blandað saman í skál

Guacamole

  1. Öllu blandað saman í skál

Svartar baunir

  1. Allt sett saman í skál nema baunirnar og kryddjurtirnar.  Baunirnar settar í lokin og svo skreytt með kryddjurtum

Meðlæti: Borið fram með nachos og/eða brauði. Fallegt að skreyta með lime bátum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert