Heimagert rauðkál sem þið verðið að prófa

Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal

Nú þegar líður að jólum með öllum sínum dásamlegu matarboðum er ekki úr vegi að bjóða upp á uppskrift að alveg stórkostlegu meðlæti. Þetta salat er í senn sparilegt, fallegt og næringarríkt. Ostakubburinn frá Gott í matinn fer svo vel með fersku salatinu, sætunni í eplinu og stökkum kasjúhnetunum. Þetta er ríflegt magn og hentar því vel í stærri boð en það má sannarlega geyma það í kæli og hita upp ef það verða afgangar af því.

Það er Valgerður Gréta Gröndal, matarbloggari á GRGS.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem er algjört skyldusmakk.

Heitt rauðkálssalat með ostakubbi, eplum og hnetum

  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 1 stk. blaðlaukur
  • 1 stk. rauðkálshöfuð (lítið)
  • 1 stk. grænt epli
  • 150 g kasjúhnetur
  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 msk. balsamedik
  • 200 g ostakubbur frá Gott í matinn
  • salt og pipar eftir smekk
  • fersk steinselja

Aðferð:

  1. Byrjið á því að saxa hvítlauk, blaðlauk (20 cm bút), rauðkál og epli.
  2. Ristið kasjúhneturnar á þurri pönnu þar til þær eru orðnar vel gylltar. Setjið til hliðar.
  3. Hitið olíu og edik saman á pönnu og bætið hvítlauk út á.
  4. Steikið hvítlaukinn í 1 mín við meðalhita, gætið þess að brenna hann ekki.
  5. Setjið blaðlaukinn út á pönnuna og steikið með hvítlauknum í smástund.
  6. Bætið þá söxuðu rauðkálinu og eplinu saman við.
  7. Saltið aðeins og piprið og steikið á pönnunni við vægan til meðalhita í 30 mín eða þar til rauðkálið hefur mýkst vel en ennþá stökkt inní.
  8. Myljið ostakubbinn yfir rauðkálið og hellið hnetunum út á.
  9. Blandið saman á pönnunni og setjið í fallega skál.
  10. Stráið smá af ferskri steinselju yfir.
  11. Berið fram með hverju sem ykkur dettur í hug, fer sérlega vel með hvers kyns hátíðarmat, líkt og kalkún, lambi eða andabringum.

Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal

Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert