Þetta getur þú undirbúið daginn fyrir aðfangadag

Við viljum njóta aðfangadags undir helst engu álagi.
Við viljum njóta aðfangadags undir helst engu álagi. mbl.is/Getty Images

Við viljum losa okkur undan óþarfa stressi á jólunum og þá er gott að geta undirbúið sem mest deginum áður. Þá má njóta aðfangadagsins í ró og næði, eða eins og best verður á kosið  og hér eru nokkur atriði sem þú getur haft í huga.

Andasteikin
Þú getur steikt öndina á Þorláksmessumorgun, skorið hana niður og lagt í eldfast mót  þá þarftu einungis að hita hana upp í ofni á 175 gráðum í 35 mínútur á aðfangadag. 

Brúnaðar kartöflur
Vertu búinn að sjóða og skræla kartöflurnar daginn áður og geymdu í kæli  þá eru þær tilbúnar til að vera brúnaðar hinn 24. desember. 

Rauðkál
Skerið rauðkálið niður daginn fyrir notkun, setjið í poka og inn í ísskáp. Takið allt kryddið til og þá er allt klárt fyrir aðfangadag. 

Hrísgrjónagrautur
Sjóðið grautinn og merjið möndlurnar daginn áður. Útbúið grautinn fyrir hádegi á aðfangadag og setjið í kæli þar til hann er borinn fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert