Svona endurnýtir þú jólatréð

Það má endurnýta jólatréð á ýmsa vegu.
Það má endurnýta jólatréð á ýmsa vegu. mbl.is/Getty images

Hið sígræna jólatré sem í stofu stendur  hvernig getum við endurnýtt það eftir að það hefur þjónað sínum tilgangi þessi jólin? Hér koma nokkur ráð um hvað sé hægt að gera við tréð. 

Notaðu greinarnar í garðinn
Ef við værum ekki á kafi í snjó þessa dagana væri tilvalið að klippa trjágreinarnar af við stofninn og nota til að hylja garðplönturnar okkar. 

Nýttu næringuna úr nálunum
Fjarlægðu nálarnar af greinunum og notaðu til að bæta jarðveginn í garðinum  garðurinn mun elska það. 

Greinar sem eldiviður
Notaðu greinarnar sem eldivið þar sem jólatré brennur ekki síður vel en annar viður og því tilvalið að henda inn í arininn og ylja sér í leiðinni. Gættu þess bara að grenið sé þurrt  en greni þornar mjög fljótt og því tilvalinn eldiviður. 

Gleðjum smáfuglana
Það er nógu erfitt fyrir litlu fuglana að finna sér eitthvað að bíta í þessa dagana. Klipptu niður greinar og hengdu upp utandyra ásamt frækúlum. Bæði þú og fuglarnir munuð njóta og hafa gaman af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert