Ben Affleck ekki við eina fjölina felldur

Ben Affleck afgreiddi kleinuhringi og kaffi í bílalúgu nú að …
Ben Affleck afgreiddi kleinuhringi og kaffi í bílalúgu nú að dögunum. mbl.is/Patriot Pics_Backgrid

Stórleikaranum Ben Affleck er margt til lista lagt - þar sem sást til hans afgreiða kleinuhringi á Dunkin Donuts nú á dögunum. 

Ben hefur haft í mörgu að snúast undanfarið. Hann giftist sinni heittelskuðu, Jennifer Lopez, í ágúst síðastliðnum. Og um áramótin birti Jennifer myndskeið á Instagram þar sem hún vitnar í besta ár lífs síns og þar mátti sjá áður óbirtar myndir úr brúðkaupinu þeirra. En það sást til Ben í bílalúgu nokkurri í Boston Massachusetts, afgreiða kleinuhringi og kaffi. 

Viðskiptavinir voru almennt ánægðir með nýja starfsmanninn sem neitaði að taka við greiðslu, og var Ben talinn fljótvirkur og fyndinn. Hann getur því alltaf leitað á nýjan starfsvettvang, fái hann leið á hvíta tjaldinu - sem við þó stórefumst um að gerist. 

mbl.is/Patriot Pics_Backgrid
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert