Sikileyskt pasta fyrir sælkera

Einfalt og þægilegt.
Einfalt og þægilegt.

Ítölsk matargerð er eitthvað sem allir ættu að prófa að spreyta sig á. Ítalir og einkum Sikileyingar eru þekktir fyrir að nota eggaldin á flestallt og er pasta þar engin undantekning.

Fáðu ítalska sumarið heim til þín og prófaðu þessa einföldu uppskrift af sikileysku pasta.

Sikileyskt pasta

Hráefni:

  • Eggaldin
  • Salt
  • Ólífuolía
  • Tómatar í dós 
  • Vatn
  • Hakkaður hvítlaukur
  • Chili-flögur
  • Oregano
  • Basilika
  • Rifinn mozarella-ostur 
  • Pasta að eigin vali

Aðferð:

1. Skrælið eggaldinið, skerið í kubba og setjið í skál með salti. Leyfið því að standa í að minnsta kosti 20 mínútur. Hellið vökvanum sem er eftir í skál og setjið síðan eggaldinið á heita pönnu með ólífuolíu og smá vatni.

2. Hitið meiri olíu á sömu pönnu og bætið tómötunum við. Kryddið ftir smekk og bætið eggaldininu og smá vatni við.

3. Eldið allt saman í um 5 mínútur og bætið síðan pastanu við ásamt smá vatni frá pastanu.

4. Bætið við 1/2 af mozzarella-osti og 1/2 af parmesan-osti. Blandið samat. 

5. Stráið restinni af ostinum yfir og bakið í um 10 til 15 mínútur, leyfið pastanu síðan að bíða og ná stofuhita áður en það er borið fram. 

6. Njótið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert