Orkustangir með appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetum

Orkustangirnar hennar Júlíu Magnúsdóttir með appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetum eru súper …
Orkustangirnar hennar Júlíu Magnúsdóttir með appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetum eru súper ofurfæða sem bragðast vel. Samsett mynd

Þessar dásamlegu orkustangir með appelsínusúkkulaði er frábærar til að njóta í millimál, með kaffinu og jafnvel í nestisboxið. Uppskriftin kemur úr smiðju Júlíu Magnúsdóttur heilsumarkþjálfa sem heldur úti lífsstílsbloggsíðunni Lifðu til fulls. Orkustangirnar eru í miklu uppáhaldi hjá Júlíu og hún segist gjarnan gera góðan skammt til að eiga til góða. Þetta eru í raun hráfæðisstangir og eru súper hollar.

„Þessar fara beint í frystinn hjá mér og ég er heppin ef þær endast út vikuna. Það er svo þægilegt að kippa einni orkustöng með sér í nesti eða fá sér eina með kaffinu seinnipartinn. Þær eru einfaldlega svo góðar að ég stelst til þess að fá mér í eftirrétt líka,“ segir Júlía og glottir. 

Orkufæða, próteinríkar og sætar

Stangirnar eru með sannkallaðri orkufæðu, próteinríkar og fullkomlega sætar. Uppskriftin er innblásin frá krúttlegum hráfæðisveitingastað Ecru í Ítalíu. Hráfæði er sannarlega ein sú orkuríkasta fæða sem völ er á og upplagt að hafa aðeins af því í mataræðinu,“ segir Júlía og vona að þessi komi sé vel fyrir marga. 

Girnilegar orkustangirnar og laða að augað.
Girnilegar orkustangirnar og laða að augað. Ljósmynd/Júlía Magnúsdóttir

Orkustangir með appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetum

  • 1 ½ bolli döðlur
  • 1 – 1 ½ bolli möndlur
  • ½ bolli spírað kínóa
  • ½ tsk. vanilludropar eða notið stevíu með vanillubragði
  • örlítið salt
  • 100 g sykurlaust appelsínusúkkulaði
  • ½ bolli pistasíuhnetur eða möndlur saxað smátt
  • 1 appelsína, börkur rifin (val)

Aðferð:

  1. Daginn áður er þetta gert.
  2. Leggið kínóa í bleyti í 1 klukkustund eða lengur.
  3. Setjið kínóað í sigti og skolið undir krana með köldu vatni.
  4. Færið þá kínóað í stóra glerkrukku eða spírunarkrukku ef hún er til.
  5. Hér er hægt að fara tvær leiðir til að spíra, annaðhvort er hægt að setja fínt sigti yfir lok krukkunnar og hvolfa svo sigtinu yfir skál.
  6. Einnig er hægt að setja viskustykki/grisju yfir lokið og hvolfa því svo kínóað geti andað.
  7. Skolið kínóa á nokkra klukkustunda fresti, passið að tæma allt vatn af. 
  8. Sjálfsagt eru þið þó ekki að vakna á nóttinni að skola af.
  9. Þetta er gert af og til nokkrum sinnum yfir daginn.
  10. Aðalatriði er að halda spírunum þurrum.
  11. Spírur munu koma eftir um það bil 24 klukkustundir, en þ get haldið áfram að spíra í 2 daga ef þ viljið fá stærri spírur.
  12. Daginn eftir gerið þið eftirfarandi.
  13. Setjið döðlur og hnetur í matvinnsluvél og hrærið saman.
  14. Bætið út í spíruðu kínóa og hrærið örlítið, deigið ætti að byrja að móta smá deigkúlu og haldast vel saman.
  15.  Það fer eftir stærð á möndlum og mýkt á döðlum þið gæt þurft að nota aðeins meira en uppskrift gefur.
  16. Bæt við annaðhvort meiri döðlum til að deigið haldist betur saman s.s verði meira klístrað eða meira af möndlum ef deigið er of klístrað.
  17. Mótið í lagnar stangir og leggið til hliðar.
  18. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði.
  19. Á meðan súkkulaðið bráðnar er gott að saxa aðeins niður hnetur og hafa til appelsínu ásamt rifjárni.
  20. Júlía notar sykurlaust appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetur.
  21. Hellið súkkulaði yfir stangirnar og dreifið hnetum yfir.
  22. Fyrir enn meira appelsínubragð og skreytingu er hægt að rífa appelsínubörk yfir allt saman. Setjið í frysti í 1 klukkustund eða þar til súkkulaðið hefur harðnað.
  23. Njótið þegar ykkur langar í orkubita.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert