Frumlegt djúsí nauta tacos með ananas

Djúsí nauta tacos með ananans borið fram í taco bátum.
Djúsí nauta tacos með ananans borið fram í taco bátum. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Sagði ekki einhver „taco Tuesday“? Skapast hefur sú hefð hjá mörgum að fá sér taco á þriðjudögum en þá má líka borða taco alla daga. Hér er kemur skemmtileg og frumleg samsetning á djúsí nauta tacos með ananas úr smiðju Berglindar Hreiðars hjá Gotterí og gersemar. Frumlegt að setja ananas með nautakjöt og mun örugglega kitla bragðlaukana. Svo er líka svo skemmtilegt að bera réttinn fram í svokölluðum taco bátum. Nýstárlegt og skemmtilegt.

Djúsí nauta tacos með ananas

Fyrir 5-7

Pulled beef

  • 1 kg nauta innlæri (sneiðar)
  • 1 laukur
  • 4 hvítlauksrif
  • 2 tómatar
  • 700 ml nautasoð
  • 200 ml appelsínusafi
  • 2 tsk. reykt paprika
  • 1 tsk. cumin
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • ½ tsk. cheyenne pipar
  • 2 msk. púðursykur
  • Ólífuolía til steikingar 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Brúnið kjötið á báðum hliðum í ólífuolíu og kryddið með salti og pipar og leggið síðan á disk.
  3. Skerið grænmetið gróft niður og steikið upp úr olíu á sömu pönnu/potti og þið steiktuð kjötið. Bætið öllum kryddum saman við og leyfið lauknum aðeins að mýkjast.
  4. Hellið næst soði og appelsínusafa saman við ásamt sykrinum, náið upp suðunni og slökkvið síðan undir.
  5. Bætið kjötinu aftur saman við, setjið lokið á pottinn/færið yfir í eldast mót með álpappír og inn í ofn í 2 klukkustundir.
  6. Takið kjötsneiðarnar þá upp úr pottinum og maukið grænmetið með töfrasprota. Náið suðunni upp að nýju og leyfið vökvanum að sjóða aðeins niður og þykkna.
  7. Tætið nú kjötið niður með göfflum og gætið í sósuna og blandið vel saman.
  8. Setjið í taco báta og toppið með ananas og öðru grænmeti (sjá hér að neðan).

Annað hráefni

  • Old El Paso taco bátar (gott að miða við 2-3 stk. á mann)
  • 1 stór dós Dole ananashringir (432 g)
  • 1-2 avókadó
  • 1 mangó
  • ½ rauðlaukur
  • ½ rauð paprika
  • Kál
  • Kóríander
  • Hellmann‘s majónes eða majónes eftir smekk

Aðferð:

  • Skerið grænmeti og ávexti niður og hitið taco bátana.
  • Raðið í bátinn ykkar eftir eigin höfði með vel af „pulled beef“ og sprautið majónesi yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert