Kjúklingabauna-taco með avókadó-límónukremi og chili

Kjúklingabauna-taco með heimagerðu tacokryddi sem steinliggur í handboltapartíinu í næstu …
Kjúklingabauna-taco með heimagerðu tacokryddi sem steinliggur í handboltapartíinu í næstu viku þegar EM-veislan hefst. Ljósmynd/Valla Gröndal

Á mörgum heimilum er mexíkóskur matur vinsæll og sérstaklega þegar kemur að taco. Hann er hægt að bjóða upp á í allskonar útgáfum. Valgerður Gréta Gröndal, alla jafna kölluð Valla, sem heldur úti síðunni Valla Gröndal, er einstaklega hrifin af tacoréttum. Hún segir að mexíkóskur matur vinsæll á sínu heimili og hún sé dugleg að nota kjúklingabaunir í staðinn fyrir kjöt til að gera gott taco. Síðan er hún líka iðin við að útbúa sitt eigið tacokrydd. Hún gerði til að mynda þetta bragðmikla og góða kjúklingabauna-taco fyrir fjölskylduna sem sló í gegn. Það er upplagt að prófa þessa útgáfu næst þegar bjóða skal upp á taco og þetta er líka frábær réttur til að bjóða upp á þegar handboltaveislan hefst á skjánum í næstu viku. 

Kjúklingabauna-taco með avókadó-límónukremi og chili

  • 8 litlar tacokökur
  • 1 dós kjúklingabaunir
  • 1 msk. olía
  • 3-4 tsk. heimagert tacokrydd (sjá uppskrift fyrir neðan)
  • 3-4 msk. vatn
  • Rifið ferskt rauðkál
  • Rauð paprika skorin í litla bita
  • Ferskt kóríander
  • Gott snakk sem passar með, t.d. Eat real snakk með chili og lemon

Avókadó-límónukrem

  • 1 dós Oatly hafrarjómaostur
  • Safi úr hálfri límónu
  • ½ þroskað avókadó
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ¼ tsk. chiliduft
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Nokkrar greinar ferskt kóríander

Heimagert tacokrydd

  • 2 tsk. reykt paprikuduft
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1 tsk. laukduft
  • 1 tsk. cumin
  • 1 tsk. þurrkað kóríander
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. svartur pipar
  • ¼ tsk. cayenne pipar
  • 1 tsk. maísena mjöl

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman í box og geymið.

Aðferð kjúklingabauna-taco:

  1. Byrjið á því að blanda saman taco kryddinu, setjið til hliðar.
  2. Útbúið avókadó-límónukremið.
  3. Setjið öll innihaldsefnin í lítinn blandara og blandið vel.
  4. Hellið vatni af kjúklingabaununum og hreinsið hýðið af ef vill en þess þarf þó ekki endilega.
  5. Setjið olíu á pönnu og hitið. Hellið kjúklingabaununum út á pönnuna og setjið 3-4 tsk. af tacokryddinu saman við.
  6. Steikið í smástund og hellið vatni saman við.
  7. Saxið grænmetið og steikið tacokökurnar á grillpönnu.

Samsetning:

  1. Setjið avókadó-límónukrem fyrst á tacoköku, því næst kjúklingabaunir, svo grænmeti og endið á snakkinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert