Ævintýraleg upplifun fyrir öll skilningarvitin

Mæðgurnar, Solla Eiríks og Hildur Ársælsdóttir standa fyrir matreiðslunámskeiðið heima …
Mæðgurnar, Solla Eiríks og Hildur Ársælsdóttir standa fyrir matreiðslunámskeiðið heima hjá Sollu sem er ævintýralega skemmtileg matarupplifun. Ljósmynd/Sjöfn

Á dögunum fór undirrituð á einstakt matreiðslunámskeið ásamt dóttur minni sem snerti öll skilningarvitin. Þetta var matreiðslunámskeið hjá mæðgunum Sól­veigu Ei­ríks­dótt­uralla jafna kölluð Solla Eiríks og dóttur hennar Hildar Ársælsdóttur. Námskeið var persónulegt og einlægt, þarna voru mæðgurnar að gera allt af ástríðu og það fann ég.

Matarboð heima hjá Sollu

Það sem gerir matreiðslunámskeiðið svona einstakt er að það fer fram eins og þær mæðgur séu að bjóða heim í mat, mér leið eins og ég væri mætt í matarboð heima hjá SolluSolla býr í fallegu húsi með sál í hjarta Hafnarfjarðar og eldhúsið hennar er akkúrat í hennar anda. Allt hannað með það í huga að geta boðið fólki heim í mat, verið með matreiðslunámskeið og síðan er það líka svo sjónvarpsvænt.

Eldhúsið hennar Sollu er einstaklega fallegt og í hennar anda …
Eldhúsið hennar Sollu er einstaklega fallegt og í hennar anda þar sem kryddjurtir, krydd, tæki og tól mynda skemmtilegt samspil. Ljósmynd/Sjöfn

Ég var alveg heilluð af húsinu hennar og þá sérstaklega eldhúsinu og borðstofunni. Eldhústækin og tól blasa við matargestum og síðan er það ilmurinn af kryddjurtunum sem tekur á móti manni þegar inn kemur. Kryddhillurnar eru ævintýralega skemmtilegar og andinn sem svífur yfir er nærandi og hlýr. Þannig eru móttökurnar þegar mæðgurnar taka á móti gestunum á matreiðslunámskeiðið.

Heimilislegt og persónulegt er hjá Sollu.
Heimilislegt og persónulegt er hjá Sollu. Ljósmynd/Sjöfn

Boðið var upp á átta rétta matseðil

Á námskeiðinu var boðið upp á átta rétta matseðil, hvorki meira né minna og allt voru þetta grænmetisréttir sem heilluðu bragðlaukana upp úr skónum. Hver rétturinn var hver öðrum betri. Þarna sátum við meðan þær kenndu okkur að matreiða þessa dásemdar grænmetisrétti og sama tíma ljóstruðu þær upp góðum leyniráðum og fróðleik um hráefnið sem notað var í réttina og fengum að njóta góðs matar. Þetta var ævintýralegt ferðalag fyrir bragðlaukana og í raun öll skilningarvitin.

Grænmetisréttirnir voru ólíkir og allir svo fallega bornir fram.
Grænmetisréttirnir voru ólíkir og allir svo fallega bornir fram. Ljósmynd/Sjöfn

Töfrarnir sem þær mæðgur kenndu okkur um kryddin, kryddjurtirnar og aðferðirnar til að ná sem besta bragðinu fram voru hreint ótrúlegir. Þótt maður sé ekki grænkeri eða vegan er þetta námskeið svo gott fyrir líkama og sál. Ég lærði að gera svo marga ljúffenga sælkerarétti sem bæði má bera fram sem aðalrétti og sem meðlæti. Síðan toppuðu mæðgurnar sig með dýrindis eftirrétti sem sló í gegn. Má þar nefna ljúffengt steikt brokkolí, ferskan grænmetisrétt, heimalagað tófu, Thai súpu og grænmetisklatta svo fátt sé nefnt. Ég vil ekki ljóstra öllum leyndarmálunum upp fyrir ykkur hinum sem eigið eftir að heimsækja þær mæðgur.

Mæðgurnar töfruðu fram 8 ómótstæðilega girnilega rétti sem komu bragðlaukunum …
Mæðgurnar töfruðu fram 8 ómótstæðilega girnilega rétti sem komu bragðlaukunum á flug. Ljósmynd/Sjöfn

Markmiðið hvatning til að borða meira grænmeti

Aðspurðar sögðu mæðgurnar okkur að eitt af því skemmti­leg­asta sem þær gerer að halda matreiðslunám­skeið. Eft­ir nokkuð langt hlé hjá Sollu langaði hana að fara aftur af stað og koma með alveg glæný námskeið og fá dóttur sína með sér í verkefniðMæðgurnar Solla og Hild­ur hafa unnið mikið sam­an og eig­a sér sameiginlegt áhugamál sem er auðvitað græn­meti. Markmiðið með námskeiðinu er líka að hvetja sem flesta til að borða meira græn­meti. Því staðreyndin er sú að við Íslend­ing­ar borðum al­mennt ekki jafn mikið af græn­meti og ávöxt­um og okk­ur er ráðlagt. Þess vegna langar þeim líka til að sýna hversu gott það er. Nám­skeiðin eru hugsuð fyr­ir alla sem lang­ar til að öðlast inn­blást­ur til að borða meira grænt, hvort sem fólk er vegan eða alæt­ur.

Að námskeiði loknu, eða öllu heldur þegar þessari dýrðlegu matarupplifun lauk voru við allar leystar út með gómsætum pakka og uppskriftum.

Solla í essinu sínu að steikja brokkólí.
Solla í essinu sínu að steikja brokkólí. Ljósmynd/Sjöfn

Innblástur fyrir okkar matargerð

Við mæðgurnar vorum alsælar eftir þessa dásamlegu kvöldstund í góðum félagsskap, með þátttakendum og mæðgunum Sollu og Hildi. Alveg upprifnar, mörgum uppskriftum og hugmyndum ríkari hvernig við getum gert matargerð okkar fjölbreyttari með grænmetisréttum og öðru ljúfmeti í matarflóruna okkar. Við fengum innblástur í okkar matargerð og meiri spennu fyrir bragðlaukana til fara í fleiri matarupplifanir þar sem grænmeti spilar aðalhlutverkið.

Meðal rétta var steikt brokkólí með ljúffengri sósu sem steinliggur.
Meðal rétta var steikt brokkólí með ljúffengri sósu sem steinliggur. Ljósmynd/Sjöfn
Mæðgurnar deila saman áhugamáli sem er grænmeti og njóta þess …
Mæðgurnar deila saman áhugamáli sem er grænmeti og njóta þess að deila ástríðu sinni með fleirum. Ljósmynd/Sjöfn
Mæðgurnar göldruðu fram eftirrétt sem sló í gegn hjá undirritaðri.
Mæðgurnar göldruðu fram eftirrétt sem sló í gegn hjá undirritaðri. Ljósmynd/Sjöfn
Sjáið þessa dýrð!
Sjáið þessa dýrð! Ljósmynd/Sjöfn
Erfitt að standast þessa freistingu.
Erfitt að standast þessa freistingu. Ljósmynd/Sjöfn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert