Manchester United fékk hagstæðan drátt

Manchester United mætir Coventry.
Manchester United mætir Coventry. AFP/Paul Ellis

Dregið var í undanúrslit enska bikars karla í knattspyrnu rétt í þessu eftir sigur Manchester United á Liverpool, 4:3, á Old Trafford. 

Manchester United dróst á móti Coventry en í hinum leiknum mætast ríkjandi meistarar Manchester City og Chelsea. 

Leikið verður á Wembley-leikvangnum helgina 20.-21. apríl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert