Þegar flett er í gegnum myndir merktar #Reykjavikpride á Instagram má glögglega sjá að svanur Páls Óskars sló rækilega í gegn í gleðigöngunni.
Svansferlíkið birtist á svo mörgum myndum að það er vart hægt að telja þær og óhætt er að segja að það hafi tröllriðið Instagram allt frá upphafi göngunnar. Margir ljósmyndaranna hafa á orði við myndirnar sínar að Páll Óskar hafi toppað sig í ár og einn segir að allar borgir ættu að hafa risavaxinn samkynhneigðan svan ráfandi um.
Vel gert, Palli, vel gert.