Melania Trump hefur í nógu að snúast sem forsetafrú Bandaríkjanna en dagur í lífi Melaniu er þó í föstum skorðum. Buisness Insider fór yfir daglegt líf forsetafrúarinnar sem vaknar snemma og fer snemma að sofa, jafnvel þó svo hún þurfi að fara fyrst heim úr veislunni.
Melania er sögð vakna rétt eftir klukkan hálfsex á morgnana eða þegar eiginmaður hennar vaknar. Þrátt fyrir það eru þau hjón sögð sofa hvort í sínu svefnherberginu.
Á morgnana hugsar hún um Barron Trump, 12 ára gamlan son hennar og Donalds Trumps. Hún kemur honum af stað í skólann, gefur honum morgunmat og nesti. Hún passar líka upp á að hann sé með heimalærdóminn í skólatöskunni en Melania er sögð setja móðurhlutverkið í fyrsta sætið. Þegar þau bjuggu í New York fór Melania með Barron í skólann og sótti hann einnig.
Melania hreyfir sig á morgnana og gerir æfingar heima fyrir. Hún er sögð gera pilates, ganga um með lóð á ökklunum auk þess sem hún spilar tennis. Heilsan er í fyrsta sæti og fyrir utan að æfa borðar hún oftast þeyting í morgunmat eða hafragraut. Hún hefur greint frá því að hún borði einnig sjö ávexti á dag en leyfir sér þó smá súkkulaði.
Sem forsetafrú Bandaríkjanna vinnur Melania að hinum ýmsu góðgerðarverkefnum en hún heldur fundi á skrifstofu sinni í austurálmu Hvíta hússins. Í vesturálmunni má finna eiginmann hennar, forseta Bandaríkjanna, en Melania hittir hann ekkert yfir daginn nema þau þurfi að mæta saman á viðburði.
Melania nýtir frítíma sinn með syni sínum og foreldrum en foreldrar hennar eru fluttir til Washington rétt eins og hún. Þegar hún vill gera vel við sig fer hún í freyðibað eða eyðir helgum á heimili fjölskyldunnar í Flórída.
Melania er síðan sögð fara snemma að sofa og er sögð fara snemma heim úr veislum til þess að passa upp á að fá sinn fegurðarblund. Áður en hún fer að sofa passar hún að þrífa á sér andlitið.