Gunna Stella tekur sykurlausan september með trompi

Gunna Stella heilsumarkþjálfi.
Gunna Stella heilsumarkþjálfi.

„Haustið er oft tími til að gera breytingar, fara aftur í rútínu og huga að heilsunni. Við Íslendingar erum rosa góð í að fara í „átak“ og reyna þannig að gera róttækar breytingar. Kona sem ég þekki sem kemur upphaflega frá Noregi hló að því hvernig Íslendingar eru. Fyrir jólin koma smákökur og konfekt. Eftir jólin er lögð áhersla á heilsueflandi vörur, í febrúar kemur þorramaturinn og um leið og þorranum lýkur koma páskaeggin,“ segir Gunna Stella heilsumarkþjálfi í sínum nýjasta pistli: 

Við vitum eflaust öll hvernig við högum okkur í samræmi við árstíðir. Það er gott að mörgu leyti því þá sækjum við í ákveðinn vana en auðvitað er best að halda jafnvægi. Það er best að huga vel að heilsunni allan ársins hring og halda rútínu.

Ég veit það af eigin reynslu að rútína er frábær. Ég þrífst rosalega vel í rútínu en þegar fer að vora og skólarnir fara í sumarfrí hlakka ég til að detta úr hluta af rútínunni. Ég hlakka til að vaka lengur, því ég elska íslensk sumarkvöld. Ég reyni samt að halda þeim hluta af rútínunni inni sem hefur mikilvæg jákvæð og góð áhrif á mig.

Ég reyni að hreyfa mig og passa upp á heilsuna og halda henni í góðu jafnvægi. Jafnvægi er gott að lýsa sem því að hjóla. Þegar við hjólum þá reynir á jafnvægi þegar við beygjum. Stundum þurfum við að beygja skarpt til vinstri og stundum til hægri og þá er eins gott að detta ekki. Þegar tekur að hausta og fröken rútína vinkona mín kemur aftur þá hlakka ég til að fara fyrr að sofa og vakna helst áður en aðrir heimilismenn vakna. Mér finnst rútína góð og mér finnst gott að setja mér markmið en best finnst mér þegar ég nýt vegferðarinnar að markmiðum mínum. 

Í dag eru margir að taka þátt í sykurlausum september. Það er gott og gilt að taka sykur út úr mataræði sínu. Sykur er bólgumyndandi og getur haft slæm áhrif á líkamann. Það er gott að hafa sykur aðeins í litlu magni í mataræði sínu, hvort sem það er september eða október. Ekki bara til að taka þátt í einhverju átaki heldur af því að þú vilt fara vel með líkama þinn. Ég tek september og janúar til að afeitra líkama minn. Mér finnst gott að gefa líkamanum tækifæri til að losa sig við aukefni og fá tækifæri til að vinna rétt og vel. Svipað gerist þegar við sofum nóg. Þá fær heilinn tækifæri til að hreinsa sig. Það sama gerist líka þegar við föstum. Ef við föstum í 12 tíma á sólarhring fær líkaminn tækifæri til að melta, hreinsa og losa sig við eiturefni. Það er margt sem hægt er að gera til að hugsa vel um líkamann. Það er gott að halda jafnvægi, njóta lífsins, fara vel með líkama okkar því við eigum bara einn. Ég hvet þig til að nota þennan mánuð til að velja það að huga vel að heilsunni. 

Ef þú vilta taka þátt í sykurlausum september á Smartlandi þá geturðu verið með HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál