Leikkonan Meghan Markle er flutt til London í lítið og krúttlegt hús við Kensington-höll og stefnir á að giftast Harry Bretaprins í vor. Fyrir aðeins nokkrum vikum bjó Meghan í leiguhúsi í Toronto, fjarri sínum heittelskaða.
Eigendur hússins sáu sér leik á borði þegar Meghan sagði upp leigunni og hafa nú sett húsið á sölu. Það hefur borgað sig að leigja verðandi eiginkonu Bretaprins húsið enda söluverðið meira en helmingi hærra en það sem fólkið keypti húsið á fyrir tíu árum.
Húsið er afar stílhreint og hvítir og gráir tónar allsráðandi. Húsið tekur ekki mikið pláss en leynir þó á sér þar sem það er á þremur hæðum, stór teppalagður kjallari er undir húsinu. Meghan var dugleg að lífga upp á húsið með fallegum bókum og litríkum blómvöndum.