Leikkonuna Lenu Dunham hafði alltaf dreymt um að innrétta og skreyta íbúðina sína eftir sínu eigin höfði. Þegar hún og þáverandi kærasti hennar Jack Antonoff fluttu inn saman skreytti hún íbúðina eftir sínu eigin höfði.
Antonoff var hins vegar ekki hrifinn. „Hann vildi ekki hata hana. Hann reyndi að hata hana ekki. En honum líkaði ekki að búa inni í höfðinu á mér,“ sagði Dunham í viðtali við Domino. Hann vildi mun einfaldari stíl, eitthvað sem gekk þvert á skapandi sýn Dunham. Hún reyndi þó að aðlagast stíl hans og vonaðist til að honum liði betur á heimilinu.
„Mér leið illa í hvert skipti sem ég breytti um stíl eða setti grátt í staðinn fyrir bleikt. Hvert samband hefur sín þolmörk. Á hverju kvöldi hugsaði ég um draumaherbergið mitt og skipulagði það,“ segir Dunham.
Á endanum hættu þau saman og Dunham flutti út. Hún var á hrakhólum um nokkurt skeið. Hún keypti sér íbúð í snarhasti, en leið illa í henni svo hún seldi hana og kom út í mínus. Síðan gisti hún hjá fjölskyldu sinni og vinum allt þar til hún fann leiguíbúð á Manhattan í New York í Bandaríkjunum.
Hún endurhannaði íbúðina ásamt innanhússarkitekt og er útkoman hreint dásamlega falleg. Bleikur, gulur og ferskjulitur eru í fyrirrúmi ásamt fallegum húsgögnum. Spegillinn sem Dunham sést í á forsíðu blaðsins er einstaklega fallegur. Fleiri myndir má sjá í umfjöllun Domino.