GDRN og Árni Steinn selja íbúðina

GDRN hefur sett íbúðina á sölu.
GDRN hefur sett íbúðina á sölu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, og sambýlismaður hennar Árni Steinn Steinþórsson hafa sett íbúð sína í Árbænum á sölu. Íbúðin sem er staðsett í Hraunbænum er 106 fermetrar og er ásett verð 59,9 milljónir. 

GDRN og Árni Steinn keyptu íbúðina árið 2021 en ári seinna eignuðust þau sitt fyrsta barn. Í Íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, þar á meðal eitt ofurkrúttlegt barnaherbergi. Gott hjónaherbergi er einnig í íbúðinni sem og notaleg skrifstofa. 

Parið hefur komið sér vel fyrir í Hraunbænum og leyft upprunalegri eldhúsinnréttingu að njóta sín í bland við tekkhúsgögn og hönnunarmuni. Á heimilinu er að sjálfsögðu píanó fyrir fullorðna fólkið sem og litla smáfólkið. 

Af fasteignavef mbl.is: Hraunbær 196

Borðstofan er falleg.
Borðstofan er falleg. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Barnaherbergið er notalegt.
Barnaherbergið er notalegt. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Eldhúsinnréttingin kemur vel út.
Eldhúsinnréttingin kemur vel út. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Stór stofa og björt stofa er í íbúðinni.
Stór stofa og björt stofa er í íbúðinni. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál