Góður ang, varalitir og innihaldsríkar samræður voru í hávegum hafðar í gærkvöldi þegar 50 glæsikonur hittust á veitingastaðnum Mar. Hópurinn naut góðra veitinga og drakk fín vín.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir, eigandi skvísuvefjarins Pjattrófur.is, skipulagði kvöldið og hóaði saman áhugaverðum konum sem ekki þekktust allar innbyrðis. Hlátrasköllin heyrðust upp á Akranes þegar heimsmálin voru rædd.
Konurnar brögðuðu á því besta af matseðlinum sem gengur út á girnilega og heilsusamlega fiskrétti með örlitlu kjötívafi. Máltíðinni var svo lokað með himneskum desertum sem fá hvert konuhjarta til að slá örar. Það er því ekki hægt að segja annað en að hver einasta skvísa hafi farið hamingjusöm í háttinn.