Svanhildur og Kristján skemmtu sér

Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu ásamt Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara á frumsýningu …
Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu ásamt Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara á frumsýningu Örlagaþráða. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel

Margir biðu spenntir eftir frumsýningu Örlagaþráða í Hörpu eins og myndirnar sýna og fögnuðu Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu, Kristján Jóhannsson óperusöngvari og  Sigurlaug Margrét Jónasdóttir útvarpskona, svo einhverjir séu nefndir, því að nú er hægt að sækja menningarviðburði þar aftur. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Herdís Anna Jónasdóttir óperusöngkonur voru einnig á frumsýningunni og skemmtu sér vel. 

Örlagaþræðir er verk þar sem söngur og dans sameinast í túlkun á ljóðum Mariu Stuart og Mathilde Wesendonck. Robert Schumann samdi tónlistina við ljóð Mariu en Richard Wagner við ljóð Mathilde. Umfjöllunarefni kvennanna eru ólík, en þær lifðu á ólíkum tímum, en áttu þó mjög margt sameiginlegt. Báðar voru þær fullar af ástríðu og þrótti en örlaganornirnar spunnu þeim ólík örlög. Hvorug náði að lifa frjáls en báðar voru leiksoppar örlaganna. Maria var tekin af lífi eftir valdatafl og pólitískar tilfæringar og Mathilde varð að beygja sig undir væntingar samfélagsins og fórna eldheitri ást Wagners.

Þær Auður Gunnarsdóttir sópran og Lára Stefánsdóttir dansari stóðu sig vel í verkinu og einnig Bjarni Frímann Bjarnason sem sá um undirleik á píanó. Leikmynd og búningar voru í höndum Ástu V. Guðmundsdóttur og sá Níels Th. Girerd um aðstoð við sviðsetningu. Jóhann Bjarni Pálmason sá um lýsingu verksins.

Níels Th. Girerd, Ásta Guðmundsdóttir, Bjarni Frímann, Auður Gunnarsdóttir og …
Níels Th. Girerd, Ásta Guðmundsdóttir, Bjarni Frímann, Auður Gunnarsdóttir og Lára Stefánsdóttir. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Svanhvít Konráðsdóttir.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Svanhvít Konráðsdóttir. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Halldór Hauksson og Hanna Dóra Sturludóttir.
Halldór Hauksson og Hanna Dóra Sturludóttir. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Karítas Ívarsdóttir og Árni Harðarson.
Karítas Ívarsdóttir og Árni Harðarson. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Inga Bjarnason með barnabarni sínu Sólu.
Inga Bjarnason með barnabarni sínu Sólu. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Sigurður Valur, Þórarinn Stefánsson og Jórunn Pálsdóttir.
Sigurður Valur, Þórarinn Stefánsson og Jórunn Pálsdóttir. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Hróar Sigurðsson, Júlia Zacharova og Þórarinn Guðnason.
Hróar Sigurðsson, Júlia Zacharova og Þórarinn Guðnason. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Guðlaug Gunnarsdóttir og Ásgeir Aron Ásgeirsson.
Guðlaug Gunnarsdóttir og Ásgeir Aron Ásgeirsson. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Matthildur og Ásrún Elmarsdætur.
Matthildur og Ásrún Elmarsdætur. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
Guðbjörg Sævarsdóttir, Birna Antonsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Hlín …
Guðbjörg Sævarsdóttir, Birna Antonsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Hlín Hólm. mbl.is/ Margrét Helga Weisshappel
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál