800 háskólanemendur flyktust í Grósku til að kynna sér Gulleggið, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni landsins en það mun vera metfjöldi háskólanema í vísindaferð. KLAK - Icelandic Startups og Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd HR keyrðu í gang síðustu vísindaferð Gulleggsins 2023 í Grósku þar sem helstu bakhjarlar Gulleggsins kynntu starfsemi sína.
Tónlistarmaðurinn Birnir tók lagið á stóra sviðinu í hjarta Grósku og tryllti lýðinn eftir formlega opnun síðustu vísindaferðarinnar fyrir Gulleggið 2023 í hátíðarsal Grósku. Freyr Friðfinnsson frá KLAK startaði vísindaferðinni með kynningu á Gullegginu í troðfullum hátíðarsalnum.
Bakhjarlar Gulleggsins komu fram og framkvæmdastjóri Grósku, Vera Dögg Antonsdóttir, fór yfir hugmyndafræðina á bakvið Grósku við mikla hrifningu viðstaddra. Viggó Ásgeirsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar á einstaklingssviði Landsbankans, tók við og fór yfir starfsemi bankans en Landsbankinn hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi eða síðastliðin 16 ár. Gísli Herjólfsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Controlant, endaði á því að fara yfir aðkomu Controlant í Gullegginu. Controlant vann keppnina árið 2009 og á 15 ára afmæli fyrirtækisins er það nú einn af bakhjörlum keppninnar.
Á morgun, föstudag, klukkan fjögur verður tekið forskot á Gulleggs-sæluna og er öllum boðið í Grósku á viðburð með Bergi Ebba, þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að kynnast og sameina krafta sína áður en Masterclass Gulleggsins hefst. Þess má geta að skráningarfrestur í Gulleggið er 20. janúar.
Aðalbakhjarl Gulleggsins 2023 er Landsbankinn sem hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi en meðal annarra bakhjarla eru Controlant, Origo, HVIN, Reykjavíkurborg, Hugverkastofa, Advania, Marel, Eyrir Invest, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóðurinn, Crowberry capital, KPMG, Ölgerðin, Brunnur, Kvika eignastýring, Gróska, Frumtak ventures, Vörður auk Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands.