Margt var um manninn þegar Vængjaþyt vonarinnar var fagnað á þriðjudaginn. Í bókinni fjallar Margrét Dagmar um son sinn Kela. Margrét lýsir glímu fjölskyldunnar við erfiðleika sem virtust óyfirstíganlegir, hún lýsir beint frá hjartanu sársaukanum og sorginni en líka gleðinni og sigrunum – og því hvernig vængjaþytur vonarinnar hvarf henni aldrei.
Kvikmyndaleikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson lét sig ekki vanta í útgáfuboðið en hann leikstýrði einmitt Sólskinsdrengnum sem fjallar um sögu Kela og kom út árið 2008. Leikkonan Kate Winslet talaði inn á ensku útgáfuna og eru þær Margrét Dagmar enn svo góðar vinkonur í dag að Winslet mælir með bókinni. „Þú breyttir lífi mínu,“ skrifar Titanic-leikkonan á kápuna.
Fyrrverandi forsetafrú Íslands, Frú Dorrit Moussaieff, mælir einnig með bókinni. „Hetjusagan um Margréti; konuna sem barðist fyrir son sinn; opnaði dyr sem allir töldu lokaðar; saga sem snart hjarta mitt; mögnuð og hrífandi. Lestur bókarinnar gerir okkur að betri manneskjum,“ skrifar Dorrit.
Fiðrik Þór og Guðrún Einarsdóttir mættu þegar bókinni Vængjaþyti Vonarinnar var fagnað.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Lísbet Grímsdóttir og Margrét Rósa Grímsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Katrín S. Óladóttir, Rakel Sveinsdóttir og Unnur Stefanía Alfreðsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Auður Róseyjardóttir og Margrét Dagmar Ericsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Jóhann Jakobsson, Margrét Dagmar Ericsdóttir, Ingunn Steina Ericsdóttir og Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Berlind Þorfinnsdóttir, Bragi Björgvinsson, Aðalheiður Björgvinsdóttir, Vera Jóhannsdóttir og Guðbjörg Sveinsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Ragnheiður Eygló Guðmundsdóttir, Margrét Dagmar Ericsdóttir og Gunnar Salvarsson.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Elísabet Hjaltadóttir, Margrét Jónsdóttir og Margrét Dagmar Ericsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Ásdís Kristjánsdóttir, Elsa Björg Þórólfsdóttir, Kristín Lilja Jónsdóttir og Þóra Ólafsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Brynhildur Bergþórsdóttir, Lára Jóhannsdóttir og Svanhvít Jóhannsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Anna María Proppé, Dagný Annasdóttir, Guðmunda Guðmundsdóttir, Herdís Jóhannsdóttir og Hlíf Magnúsdóttir.
mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir