Ekkert kynlíf þegar hann er með börnin

Íslensk kona er að gefast upp á sambandi sínu við …
Íslensk kona er að gefast upp á sambandi sínu við manninn sinn þar sem hann stimplar sig alltaf út úr sambandinu þegar hann er með börnin sín. Marcin Jozwiak/Unsplash

Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá konu sem finnst maðurinn hennar stimpla sig út úr sambandinu þegar synir hans dvelja hjá þeim. 

Sæl Valgerður.

Ég er búin að vera í sambandi  við mann í tvö ár sem á stráka úr fyrra sambandi. Ég elska manninn minn og get ekki hugsað mér að missa hann. Ég er hins vegar alveg komin að því að ganga út og er komin með kvíðahnút nokkrum dögum áður en þeir koma til okkar. Ég reyni að vera lítið heima en mér finnst maðurinn minn „stimpla sig úr sambandinu“ þegar þeir eru hjá okkur. Það er meira að segja skrúfað fyrir allt kynlíf!

Kveðja, 

ein örvæntingarfull.

Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi.
Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Komdu sæl.

Það er skiljanlegt að þú hlakkir ekki til að strákarnir hans komi til ykkar, ef þér líður þannig að maðurinn þinn „stimpli sig út“ úr sambandinu í návist þeirra. Hann vill örugglega að strákarnir finni að hann sé til staðar fyrir þá. Hins vegar get ég ímyndað mér að koma þeirra valdi honum líka vissum kvíða og hann upplifi að hann sé einn á báti með þá þegar hann finnur spennuna í þér. Hann gæti dregið þá ályktun að þú þolir ekki strákana hans þar sem þú ert lengur í vinnunni, meira með vinkonum þínum eða í ræktinni þá viku sem þeir eru hjá ykkur. Hann telur sig örugglega vera að gera rétt með því gefa þér allan sinn tíma aðra vikuna, og strákunum hina vikuna.

Sjálfsagt upplifir hann, rétt eins og þú, skilningsleysi og vanmátt; „þú vissir að hann átti börn“. Jú, að sjálfsögðu fór það ekki framhjá þér, en ekki að „þú hefðir enga stjórn á (kyn)lífi þínu“. Það reynist mörgum erfitt að taka þessa umræðu og leysa ágreininginn á uppbyggilegan máta. Hætta er á að ágreiningurinn dragi allt súrefnið úr sambandinu sé hann látinn viðgangast of lengi.

Vert er að hafa í huga að það tekur tíma fyrir ykkur að slípa ykkur saman og því mikilvægt að vita við hverju má búast og hafa gagnleg verkfæri til að takast á við hlutina. Þessi staða er mun algengari en margir halda og er vel hægt að koma í veg fyrir hana með því að læra og  fræðast um stjúptengsl.

Það er í sjálfu sér mjög jákvætt að manninum þínum sé umhugað um börnin sín og ætli þeim góðan tíma þegar þeir eru hjá ykkur, hins vegar er nokkuð ljóst að „aðferðafræðin“ hjá ykkur virkar ekki. Hann telur sig sjálfsagt vera að gera góða hluti með því að skipta vikunum á milli þín og strákanna. Hann áttar sig örugglega ekki á að þér finnist þú vera út undan og viljir fá að vera kærasta allar vikur ársins og taka þátt, en ekki bara aðra hvora viku.  

Þið þurfið að læra að gera og vera eitthvað sem kallast „við“. Í stjúpfjölskyldunni eru nokkur „við“ í fyrstu og það þarf að gefa þeim öllum rými. Það er gott að skipuleggja bæði þann tíma sem börnin eru og líka eitthvað hina dagana. Strákarnir þurfa á pabba sínum að halda og fá tíma með honum án þín. Hins vegar þarft þú og maðurinn þinn að ákveða saman hvaða tími vikunnar hentar þeim og ykkur öllum. Saman og sitt í hvoru lagi. Þið ættuð líka að búa til tíma fyrir ykkur ein, það má stunda kynlíf hvaða tíma dags sem er, fara í göngutúra, eða gera eitthvað sem nærir ykkur sem par.

Aðalatriðið er að þið „stimplið“ ykkur inn í sambandið þá vikuna sem strákarnir eru hjá ykkur. Það kann sumum að finnast það skrýtið þar sem þið eruð alltaf ein aðra hvora viku, en það er nauðsynlegt til að þið hafið úthald saman í þau verkefni sem fylgja því að byggja upp stjúpfjölskyldu. Hættu að „flýja“ að heiman, búðu frekar til gæðastundir fyrir þig eina í samráði við maka þinn, til að fara eitthvað með vinkonum eða njóta einverunnar. Það verður nærandi að fara út, í stað þess að flýja í pirringi. Andrúmsloftið verður léttara heima, allir græða, engin spurning. 

Kær kveðja, 

Valgerður Halldórsdóttir stjúptengsl.is

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Valgerði spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál