Kolbrún Pálína sér ekki eftir neinu

Kolbrún Pálína Helgadóttir ritstýra Nýs Lífs.
Kolbrún Pálína Helgadóttir ritstýra Nýs Lífs. mbl.is/Úr einkasafni

Kolbrún Pálína Helgadóttir, ritstjóri Nýs Lífs, verður einn af dómurunum í Ungfrú Ísland sem fram fer á Broadway annað kvöld. Guðrún Möller, sem eitt sinn var fegurðardrottning, hafði samband við Kolbrúnu og bað hana um að dæma í keppninni.

„Þetta er skemmtilegur hópur og verkefni og ég gat ekki sagt nei."

Kolbrún Pálína sigraði Ungfrú  Ísland.is árið 2001. Þegar hún er spurð að því hvort keppnin hafi veitt henni einhver tækifæri í lífinu segir hún að keppnin hafi mótað leið hennar í lífinu.

Eftir á að hyggja þá hefur þetta mótað leið mína að miklum hluta og því vottar ekki fyrir eftirsjá í mínum huga. Það fylgdi titlinum að skrifa pistla á Strik.is og þá uppgötvaði ég fegurðina við að skrifa og hef skrifað síðan.

Finnst þér fegurðarsamkeppnir engin tímaskekkja?

"Það má vissulega deila um það en ég lít svo á að það sé hvers og eins að ákveða hvað hann tekur með sér úr svona reynslu. Þetta er jú ekkert nema reynsla og upplifun. Svo má ekki gleyma því að þetta er ofboðslega skemmtilegt! Svo eru sumar sem fá stór tækifæri í kjölfar svona keppna, bæði sem fyrirsætur og fegurðardrottningar."

Hvaða útlit er inn í dag? Verður blondína í fyrsta sæti eða?

"Það er ómögulegt að segja, hópurinn er einstaklega sterkur í ár og þær þurfa að leggja allt í þetta á lokakvöldinu. Það getur allt gerst!"

Kolbrún Pálína Helgadóttir.
Kolbrún Pálína Helgadóttir. mbl.is/Úr einkasafni
Ný heimasíða ungfruisland.is. Fór opnunin fram hjá hönnuðinum, auglýsingastofunni DBT. …
Ný heimasíða ungfruisland.is. Fór opnunin fram hjá hönnuðinum, auglýsingastofunni DBT. www.nulleinn. Myndatexti: Elva Dögg Melsteð (sigurvegari í fyrstu keppninni, árið 2000) og Kolbrún Pálína Helgadóttir (sigraði í fyrra) opnuðu síðurnar. Jim Smart
Allt of margir eru sífellt að barma sér yfir engu.
Allt of margir eru sífellt að barma sér yfir engu. Þorkell Þorkelsson
Kolbrún Pálína í Miss World keppninni.
Kolbrún Pálína í Miss World keppninni. mbl.is/Úr einkasafni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál