Áttu hinn ljúfasta fermingardag

Anna Lilja Gunnlaugsdóttir fermdi dóttur sína Rut Marín í fyrra. Hún segir að árið hafi kennt henni að endurhugsa hlutina og skoða hvar hún setur athygli og orkuna. Það hafi hún heimfært á fermingu dótturinnar einnig. Anna Lilja Gunnlaugsdóttir, viðskiptafræðingur og skrifstofustjóri hjá Stapa lífeyrissjóði, býr á Akureyri með börnum sínum; Rut Marín og Gunnlaugi Orra.

Fermingin gekk vel þó fermingadagurinn hafi verið öðruvísi en áætlað var.

„Þar sem ég hef ekki fermt áður hef ég ekki beint samanburð en get þó sagt að það hafi verið eins og svo ótal margt annað á síðasta ári, öðruvísi og sannarlega annað en maður hafði ímyndað sér. En öðruvísi er alls ekki alslæmt og á endanum áttum við hinn ljúfasta fermingardag.“

Héldu fámenna en góðmenna veislu

Hvernig var veislan?

„Að íhuguðu máli var niðurstaðan að hafa litla veislu heima með okkar allra nánasta fólki á fermingardaginn þann 29. ágúst. Við mæðgur vorum búnar að bjóða til fjölmennrar veislu í byrjun júní, sem engan veginn gekk upp á þeim tíma. Í okkar nánasta hring eru líka alvarleg veikindi og við ákváðum því að njóta seinni fermingardagsins í fámennum en afskaplega góðmennum hópi.“

Anna Lilja segir að árið 2020 hafi kennt henni hversu mikilvægt er að endurstilla sig og huga að því hvert best er að beina athyglinni.

„Mér finnst árið hafa kennt okkur að endurhugsa hlutina. Í hvað við erum að eyða orku okkar og tíma, af hverju og fyrir hvern? Það var og er mjög auðvelt að heimfæra þetta yfir á ferminguna. Við mægður erum ekki endanlega búnar að gefa upp á bátinn að halda veislu. Einfaldlega af því að okkur langar svo innilega mikið til þess. Við erum þakklátar fyrir hversu margt frábært fólk við þekkjum, hversu dýrmætir vinir okkar allir eru og stórfjölskyldan einnig. Okkur langar að fagna með okkar góða hópi, en útfærslan hefur verið flókin, út af þið vitið hverju. Þetta snýst ekki endilega um hvað þú þarft að gera heldur meira hvað þig langar að gera.“

Undirbúningur býður upp á skemmtilegar samverustundir

Hvað var skemmtilegast að gera í undirbúningi fyrir ferminguna?

„Af mörgum ástæðum náðum við undirbúningnum ekki almennilega á flug. En þetta er dýrmætur tími og býður upp á skemmtilegar samverustundir með elskulegum unglingnum sem stækkar og þroskast á ógnarhraða. Það er gaman að spá og spekúlera hvað fermingarbarnið langar að gera og vinna saman að því að útfæra það. Finna föndrarann í sér og leyfa skipulagsdólginum að blómstra - ef hann til staðar.“

Hvað var erfiðast?

„Í árferðinu í fyrra fannst mér yfirhangandi óvissan erfiðust og hún litaði auðvitað undirbúninginn. Meirihlutann af tímanum vissi maður vart hvort maður var að koma eða fara. Fjölskylduaðstæður eru auðvitað alls konar en persónulega fannst mér líka snúið að falla ekki beint í hefðbundna kassa, litaða af samfélagsmiðlaalsælunni. Það er ekki allt hvítt og svart og aðstæður ólíkar en mikilvægast að fylgja því sem fermingarbarnið vill.“

Anna Lilja segir að ef hún gæti gefið foreldrum fermingarbarna ráð á þessu ári þá sé það eftirfarandi:

„Kynngimögnuð klisja sem er gott að muna er hversu mikilvægt er að njóta. Þó svo stundum sé það snúið og maður sé ögn nasablaktandi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál