Bjó í Portúgal til 2007 og vissi því lítið um málið

Leikarinn Vilhelm Neto var kristinn unglingur.
Leikarinn Vilhelm Neto var kristinn unglingur.

Hinn góðkunni sprelligosi, leikari og leikstjóri Vilhelm Neto var kristinn sem unglingur og hann var kátur með að hafa fengið Biblíu og stórar bækur í fermingargjöf þótt hann hafi nú ekki lesið mikið í Biblíunni síðan. 

„Ég var nefnilega nokkuð trúaður á þessum tíma og frétti í raun ekki af gjafahefðinni fyrr en ég var kominn langt í fermingarfræðslunni. Ég var fyrsti krakkinn í nærfjölskyldunni sem fermdist með þessum hætti og ég vissi í sjálfu sér ekki mikið um fermingar, enda hafði ég búið og alist upp í Portúgal alveg til ársins 2007,“ segir Vilhelm.

Vinirnir komust í veisluna

Hann segist hafa fengið góða fermingarveislu sem var full af fjölskyldu og vinum og veðrið lék við fermingardrenginn og gesti hans.

„Í matinn var allt þetta klassíska, eins og ég fíla það. Brauðterta og heitir brauðréttir ef ég man rétt og síðan fullt af æðislegum kökum og tertum í eftirrétt. Veislan var haldin heima hjá ömmu í æðislegu húsi í Kópavogi með risastórum garði og svona. Ég var klæddur í mjög flott jakkaföt frá Kormáki og Skildi og var með fína Bítlagreiðslu. Svo fermdist ég ári á eftir jafnöldrum mínum svo góðir vinir mínir komust í veisluna þar sem þeir voru ekki að fermast sjálfir.

Vilhelm Neto á fermingardaginn ásamt föður sínum. Kormákur og Skjöldur …
Vilhelm Neto á fermingardaginn ásamt föður sínum. Kormákur og Skjöldur sáu um klæðnað fermingardrengsins.

Fékk ljósmyndabækur um lífið og náttúruna

Biblíu, nokkrar mjög flottar og stórar bækur og auðvitað peninga fékk ég að gjöf. Ég hef ekki lesið mikið í Biblíunni en stóru bækurnar hef ég mikið gluggað í. Þetta voru ljósmyndabækur, bækur um lífið á jörðu og náttúruna og svona. Mér finnst fermingargjafirnar til krakka í dag bara fínar. Þetta fer svo mikið eftir fjárhag fjölskyldunnar. Mér finnst bara fallegt að einhver ákveði að gefa manni gjöf á svona degi. Sumir myndu kannski segja að krakkarnir fengju of mikið, en ég veit ekki... ég er ekki beint búinn að mynda mér mjög sterka skoðun á þessu.“

Frumsýningar og fermingar gera mann fullorðnari

Spurður hvort honum hafi þótt hann fullorðnast við ferminguna og hvort hann hafi til dæmis byrjað að fara út að djamma eftir það, segist hann hafa verið frekar rólegur.

„Ég byrjaði að drekka mikið seinna en flestir á mínum aldri. Ég var alveg búinn að vera í einhvern tíma í Menntaskólanum við Hamrahlíð þegar ég byrjaði fyrst að drekka. Það er eitthvað sem ég myndi mæla með fyrir krakka en það er auðvitað mismunandi eftir fólki hvað hentar þeim. Þetta hentaði mér vel. Það sem mér fannst skipta mestu við þetta var að fara í gegnum þetta ferli og vera svo mættur í „fullorðinna manna tölu“ eins og það kallast. Þó get ég ekki sagt að ég hafi strax upplifað mig sem fullorðinn eftir fermingu. Það gerðist meira þegar ég byrjaði í menntaskóla. Þá kom fullorðinsorkan inn í daglega lífið hjá mér. Svo heldur það bara áfram. Manni finnst maður vera alltaf fullorðnari eftir svona athafnir, útskrift, fermingu, frumsýningar og fleira. Eftir frumsýningu er maður búinn að klára eitthvert stig og ganga í gegnum eitthvert ferli. Svo fær maður að frumsýna þetta ferli sem maður hefur verið að ganga í gegnum með ákveðnu verki. Það er svona eins og punktur í kafla. Lokin á einhverju og upphafið á einhverju nýju.“

Væri til í að eyða helgi með fjölskyldunni í náttúrunni

Spurður hvað hefði kannski getað gert ferminguna hans að meiri manndómsvígslu kemur Vilhelm með sæta og fallega hugmynd. „Ef maður ætti að búa til góða öðruvísi manndómsvígslu þá væri það kannski að eyða helgi úti í náttúrunni með fjölskyldunni, heyra reynslusögur foreldra sinna, fara í langar göngur, elda eitthvað gott og njóta saman,“ segir hann. En hvernig er svo staðan á trúarhita leikarans, er hann enn jafn trúaður og þegar hann fermdist? Eftir andartaksumhugsun vitnar Vilhelm í athafna- og listamanninn Leó Árnason sem kallaði sig Ljón norðursins. „Þegar Leó var spurður út í það hversu trúaður hann væri svaraði hann: „Ég er reyndar löngu hættur að líta á drottinn sem fasta stærð, ég held að sérhver lífvera sé lítill guð, við höfum öll neistann af guði í okkur.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál