Það dró heldur betur til tíðinda í vikunni hjá áhrifavöldum þessa lands þegar hálf stéttin skellti sér með litlum fyrirvara vestur til Kúbu. Það var þó nóg um að vera hjá þeim sem eftir urðu sem skelltu sér meðal annars á „aprés-ski“ á Petersen svítunni í miðborg Reykjavíkur. Smartland tók saman það helsta af Instagram þessa vikuna.
Heilsumarkþjálfinn Hera Gísladóttir rifjaði upp Danmerkurferð.
Söngkonan Bríet segir hæ.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir naut lífsins í volgum sjónum við strendur Kúbu.
Uppistandarinn Sóli Hólm er kominn í iðnaðarmannagallann.
Móeiður Lárusdóttir skellti sér til Lundúna með vinkonum sínum.
Rúrik Gíslason er kominn hinu megin við dómaraborðið í Let's Dance í Þýskalandi.
Dansarinn Ástrós Traustadóttir skellti sér einnig til Lundúna.
Crossfit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir fór á sundbolnum í snjóinn.
Tónlistarkonan Þórunn Antonína Magnúsdóttir er líka á Kúbu.
Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson og Egill Ólafsson gáfu út nýtt lag.
Fyrirsætan Berglind Icey skellti sér til Dóminíska lýðveldisins.
Það var góð stemning á Petersen svítunni á laugardaginn. Birgitta Líf Björnsdóttir og Kristín Pétursdóttir létu sig ekki vanta.
Elísabet Gunnarsdóttir tískubloggari eyddi sólarhring á Suðurlandi.
Tónlistarkonan Birgitta Haukdal mætti mánuði of snemma í afmæli.
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson birti mynd í tilefni af konudeginum.
Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skellti sér á skíði.
Verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir gerði slíkt hið sama.
Áhrifavaldurinn Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir sýndi magavöðvana.
Jóhanna Helga Jensdóttir skellti sér líka í sjóinn við Kúbu.
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jamie nýtur lífsins á Kúbu.