Bandaríska Hollywood-leikkonan, Diane Keaton er formlega hætt á stefnumótamarkaðnum.
Hin 77 ára gamla stórleikkona, sem hefur aldrei verið gift, sagði það fremur ólíklegt að hún yrði nokkurn tímann í öðru sambandi. „Ég fer ekki á stefnumót,“ sagði Keaton í viðtali við tímaritið AARP.
„Ég man ekki eftir því að einhver hafi hringt í mig og sagt: af þessari ástæðu langar mig að bjóða þér út.“ Það er bara ekki að gerast og auðvitað ekki.“
Keaton er reyndar ein þeirra sem hefur alltaf tekið einhleypa lífstílnum opnum örmum. Hún ættleiddi dótturina, Dexter og soninn Duke, þegar hún var komin vel á fimmtugsaldur. „Þau eru frábær,“ sagði Keaton um börnin sín. „Þeim gengur vel.“
En nú þegar börnin hafa flutt úr hreiðrinu, hefur Keaton fundið sér nýjan félaga sem hefur fangað hjarta hennar, hund að nafni Reggie. „Hundar eru ómótstæðilegir,“ útskýrði hún. „Þeir eru bara hálfgerðir fávitar. Reggie er algjör asni og hún er bráðfyndin.“
Í janúar deildi Keaton með Extra að það væru heil 15 ár síðan hún hefði farið síðast á stefnumót. Hún gantaðist með það að vonbiðlum sínum þætti hún eflaust „of skrýtin.“