Leikkonan Meghan Markle, unnusta Harrys Bretaprins, vekur athygli hvar sem hún kemur fyrir nútímalegan og klassískan fatastíl. Eins og svo oft áður var kápan aðalatriðið þegar hún heimsótti útvarpsstöð í Brixton ásamt unnusta sínum.
Að sögn eftirtektarsamra netverja er falleg ullarkápan frá Smythe og kostar rúmlega 80 þúsund krónur á vefversluninni Revolve. Kápan er að sjálfsögðu uppseld. Smythe er kanadískt merki sem Meghan hefur áður sést í en hún hefur haldið tryggð við kanadíska framleiðendur eftir að hún bjó í Toronto þar til nýlega.
Meðlimir konungsfjölskyldunnar eru duglegir að klæðast breskum merkjum og það gerði Meghan líka í heimsókninni en hún var í svörtum fatnaði undir kápunni. Er peysan sögð frá Marks & Spencer og buxurnar frá Burberry en trefillinn er frá Jigsaw.
Þau Meghan og Harry eru með svipaðan stíl en Harry var einnig vel klæddur í ullarfrakka og passaði klæðnaður þeirra vel saman.