Það er nóg að gera hjá svilkonunum Katrínu og Meghan. Hertogaynjurnar sinntu báðar erindum sínum í rauðum fötum á miðvikudaginn. Litu þær einna helst út fyrir að hafa ákveðið að klæða sig í stíl þó svo það verði að teljast ólíklegt fyrir konur sem eiga aðeins nokkur ár í fertugt.
Fyrr um daginn var Meghan í rauðum víðum kjól, sem faldi óléttukúluna vel, og vínrauðri kápu frá Club Monaco. Katrín klæddist hins vegar rauðri dragt frá franska merkinu Paule Ka seinna um daginn svo klæðnaður Meghan hefði ekki átt að koma henni á óvart. Báðar voru þær í svörtum skóm og sokkabuxum.
Nú er bara spurningin hvort rauða dressið var flottara?