Sarah Jessica Parker segir að nú sé tíminn til að taka upp silkináttfötin og byrja að nota þau við hin ýmsu tilefni.
Hún mælir með að nota glitrandi toppa innan undir náttfötin, háa hæla, og perlufesti. Parker ítrekar að þessi klæðnaður sé frábær til að kæðast heima fyrir. Gott sé að skottast út að ná í blaðið á morgnana á þennan hátt. Eins mælir hún með þessu dressi þegar halda skal í náttfatapartý með vinum. Hún telur náttfötin jafnvel eiga erindi í jólaboðið í vinnunni á þessu ári.
Sarah Jessica Parker er þekkt fyrir að hafa flottan smekk þegar kemur að tísku og útliti. Hún þorir að ganga aðeins lengra en hefðbundið þykir og er þar með leiðandi á sviði tískunnar víðs vegar um heiminn.
Það er aldrei að vita hvort íslenskar konur taki ráðum hennar og mæti í jólapeysuboðin á þessu ári í náttfötunum.