Þegar kemur að tískunni þá eru páskarnir að þessu sinni tími flaksandi kjóla.
Tískusveiflan á þessu ári er ljósir rómantískir blómakjólar. Einfaldir kjólar sem minna á sjöunda áratuginn og laus snið.
Flestir tengja páskana við þægindi og lúxus og flestir tískuhönnuðir átta sig á því að um páskana þegar flestir eru að gæða sér á ljúffengum mat og súkkulaði langar engan að þvinga sig ofan í þröngan kjól lengur.