Stal senunni í heiðgulum kjól

Lífsgleði Drew Barrymore var áþreifanleg á tískuverðlaunahátíðinni CFDA í New …
Lífsgleði Drew Barrymore var áþreifanleg á tískuverðlaunahátíðinni CFDA í New York á dögunum. AFP

Mikið var um dýrðir á tískuverðlaunahátíðinni CFDA (Council of Fashion Designers of America) í New York á dögunum. Verið var að heiðra frambærilegustu hönnuði Bandaríkjanna. Leikkonan Zendaya vann verðlaunin tískufyrirmynd ársins (fashion icon) og klæddist hún tvískiptum rauðum kjól úr smiðju Veru Wang.

Óhætt er þó að segja að leikkonan Drew Barrymore hafi stolið senunni í heiðgulum tjullkjól frá Christian Siriano. Kjóllinn þótti hæfa persónuleika hennar einstaklega vel enda er hún þekkt fyrir að vera síbrosandi og vingjarnleg í fasi.

Þá vakti breska leikkonan Emily Blunt einnig athygli fyrir appelsínugula buxnadragt frá Christopher John Rogers en hann var verðlaunaður fyrir að vera í fararbroddi í kventískuhönnun.

Drew Barrymore mætti í heiðgulum kjól úr tjulli eftir hönnuðinn …
Drew Barrymore mætti í heiðgulum kjól úr tjulli eftir hönnuðinn Christian Siriano. AFP
Zendaya var í kjól frá Veru Wang.
Zendaya var í kjól frá Veru Wang. AFP
Emily Blunt sýndi á sér nýja og djarfari hluið og …
Emily Blunt sýndi á sér nýja og djarfari hluið og klæddist appelsínugulri buxnadragt frá Christopher John Rogers sem verðlaunaður var á hátíðinni. AFP
Tom Ford er alltaf óaðfinnanlegur.
Tom Ford er alltaf óaðfinnanlegur. AFP
Vera Wang er 72 ára og alltaf flott.
Vera Wang er 72 ára og alltaf flott. AFP
Ashley Olsen steig ekki út fyrir þægindarammann sinn þetta kvöld …
Ashley Olsen steig ekki út fyrir þægindarammann sinn þetta kvöld og klæddist skósíðri svartri kápu líkt og svo oft áður. AFP
Anya Taylor-Joy sem sló í gegn í þáttunum Queens Gambit …
Anya Taylor-Joy sem sló í gegn í þáttunum Queens Gambit var í fötum frá Oscar de la Renta. Hún vann andlit ársins- verðlaunin. AFP
Bandaríska leikkonan Aubrey Plaza vakti athygli fyrir þetta útlit. Dressið …
Bandaríska leikkonan Aubrey Plaza vakti athygli fyrir þetta útlit. Dressið er úr smiðju Thom Browne. AFP
Cara Delevingne beraði bringuna í svartri dragt.
Cara Delevingne beraði bringuna í svartri dragt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál