Tískan 2022: Tvíhneppt, stutt hár og 40 den

Nýtt ár kallar á ný tækifæri og nýja orku. Eftir annasemi desember-mánaðar er ekki úr vegi að taka til í tilverunni og anda að okkur ferskum straumum og stefnum. 

Til þess að það gangi sem best að taka inn nýja orku þarftu að losa þig við það sem tilheyrir fortíðinni. Það er gott fyrir sálin að taka til í skúffum og skápum, bílskúrum og háaloftum. Fataskápurinn þarf reglulega yfirhalningu og það getur verið ágætt að taka allt úr honum, fara yfir hverja einustu flík og meta hvort hún passi við uppfærða útgáfu af þér á nýju ári.

Í vikunni handþvoði ég föt, straujaði skyrtur og kjóla og fór yfir fataskápinn. Hvatvíst fólk með áhuga á fötum á það til að sanka að sér óþarfa sem framkallar augnabliks-bliss en eldist illa. Það er alveg sama hvað hvatvísir fagurkerar reyna að vanda sig mikið í að kaupa engan óþarfa þá slæðist alltaf eitthvað með.

Díana prinsessa með perlur um hálsinn og stutt hár. Þetta …
Díana prinsessa með perlur um hálsinn og stutt hár. Þetta tvennt var einkennandi fyrir hennar stíl.

Eiginmaður minn spurði hvers vegna stæði á því að það lægju oft föt á hjónarúminu þegar hann kæmi heim úr vinnunni. Hann fer yfirleitt á undan mér út úr húsi og ef ég er annars hugar á ég það til að máta nokkur sett af fötum áður en réttu fötin finnast. Það datt af honum andlitið þegar ég sagði þetta. Hann tengdi ekki við neitt. Sem er ekkert skrýtið. Það er ekki eins og það sjáist á klæðaburði mínum að hann sé að fara yfir öll tímamörk og sé útpældur.

Hann er hins vegar að venjast því þegar ég tek mig til og sel hluti af heimilinu eða úr fataskápnum þótt honum hafi vissulega fundist það framandi til að byrja með. Það fylgir því einhver sálarró að losa það sem ekki er notað og leyfa öðrum að njóta þess. Þess vegna fannst mér eðlilegt að spyrja krakkana okkar hvort þau ættu ekki eitthvað sem þau notuðu ekki lengur og myndu vilja selja. Tólf ára sonurinn á heimilinu spurði móður sína hvort við ættum ekki lengur fyrir mat og þyrftum að fjármagna okkur með fatasölu.

Ég neitaði því og sagði að í mínum huga væri jafnsjálfsagt að selja úr fataskápnum sínum eins og að flokka rusl og fara í endurvinnsluna. Það síðastnefnda er einmitt á dagskránni og ég hlakka til að burðast með pokana úr skottinu á bílnum, bíða í röð og vona að dósirnar fari ekki út um allt og horfa svo á eftir gömlum syndum fara á vit nýrra ævintýra. Það er eitthvað við það að endurvinna, endurnýta og fara vel með sem er svo mikið 2022.

Erlendir tískusérfræðingar spá því að gömul merkjavara muni gera allt vitlaust á árinu og ein helsta tískufyrirmyndin verði Díana heitin prinsessa af Wales. Þegar þú verður komin með perlufesti um hálsinn og búin að klippa þig stutt, komin í tvíhnepptan jakka, pils sem nær 10 sm fyrir ofan hné og 40 den sokkabuxur þá veistu að þú ert að gera eitthvað rétt í lífinu. Áfram þú!

Saint Laurent sýnir gulltölur og stór sólgleraugu.
Saint Laurent sýnir gulltölur og stór sólgleraugu.
Balmain er að vinna með gulltölur og stutt pils í …
Balmain er að vinna með gulltölur og stutt pils í vortískunni.
Röndótt skyrta og buxur sem ná upp í mittið frá …
Röndótt skyrta og buxur sem ná upp í mittið frá Saint Laurent.
Díana dýrkaði Chanel og sást gjarnan með svona tösku og …
Díana dýrkaði Chanel og sást gjarnan með svona tösku og í fatnaði frá franska tískuhúsinu.
Hér er Kristen Stewart í hlutverki Díönu í kvikmyndinni Spencer …
Hér er Kristen Stewart í hlutverki Díönu í kvikmyndinni Spencer sem sýnd er í kvikmyndahúsum. Hér er hún í pilsi og rauðri rúllukragapeysu.
Díana var mikið í kjólum og pilsum sem náðu rétt …
Díana var mikið í kjólum og pilsum sem náðu rétt fyrir ofan hné líkt og Saint Laurent gerir hér.
Þessi jakki fæst í Zara og er mjög Díönu-legur.
Þessi jakki fæst í Zara og er mjög Díönu-legur.
Saint Laurent.
Saint Laurent.
Samfestingar verða arfavinsælir í vortískunni. Hér sýnir Saint Laurent samfesting …
Samfestingar verða arfavinsælir í vortískunni. Hér sýnir Saint Laurent samfesting og setur blátt belti í mittið og setur töskuna ofan í beltið. Takið eftir eyrnalokkunum og hálsmeninu.
Stutt hár, gulltölur og rauðir hanskar hjá Saint Laurent.
Stutt hár, gulltölur og rauðir hanskar hjá Saint Laurent.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál