Theódór rekinn frá Aftureldingu

Theódór Sveinjónsson.
Theódór Sveinjónsson. Mynd/Afturelding.

Theódóri Sveinjónssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara kvennaliðs Aftureldingar í knattspyrnu. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins rétt í þessu.

Gengi Aftureldingar hefur verið afar slakt upp í deildinni í sumar en liðið hefur aðeins eitt stig eftir níu leiki og er á botni deildarinnar.

Afturelding tapaði í gær fyrir Íslandsmeisturum Stjörnunnnar 3:1 sem virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn.

Theódór tók við liðinu í fyrra og undir hans stjórn lenti liðið í 8. sæti deildarinnar.

Óljóst er hver það verður sem mun taka við liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert