Hólmbert á leið til Aalesund?

Hólmbert Aron Friðjónsson.
Hólmbert Aron Friðjónsson. mbl.is/Golli

Líklegt er að Hólmbert Aron Friðjónsson, knattspyrnumaður úr Stjörnunni, gangi til liðs við norska B-deildarfélagið Aalesund.

Hólmbert staðfesti við mbl.is að hann væri í viðræðum við norska félagið en sagði að ekki væri komin niðurstaða úr þeim.

Aalesund féll úr norsku úrvalsdeildinni í haust. Með liðinu leika þrír Íslendingar, Aron Elís Þrándarson, Daníel Leó Grétarsson og Adam Örn Arnarson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert