Kvennalið KR í knattspyrnu hefur fengið liðsauka fyrir komandi keppnistímabil en landsliðskona frá Serbíu er komin í raðir Vesturbæjarliðsins.
Hún heitir Tijana Krstic og er 22 ára varnarmaður sem hefur leikið með Pomurje í Slóveníu undanfarin tvö ár en var áður m.a. með Rauðu stjörnunni. Hún á að baki 32 landsleiki fyrir Serbíu og hefur skorað tvö mörk.