Keflvík á toppinn eftir sigur á ÍA

Natasha Anasi skoraði annað mark Keflvíkinga í kvöld.
Natasha Anasi skoraði annað mark Keflvíkinga í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Keflavík tók á móti ÍA í fimmtu umferð Inkasso-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld en leiknum lauk með 2:0 sigri heimakvenna. Staðan að loknum fyrri hálfleik var markalaus en Sveindís Jane Jónsdóttir kom Keflavík yfir á 57. mínútu.

Natasha Moraa Anasi tvöfaldaði svo forystu Keflvíkinga á 68. mínútu og lokatölur því 2:0 sigur heimakvenna. Keflavík er er á toppi deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu fimm umferðirnar. Fylkir er í öðru sæti deildarinnar með 9 stig en Keflavík og Fylkir eiga bæði leik til góða þar sem leik liðanna í fjórðu umferð deildarinnar var frestað. ÍA er áfram í þriðja sætinu með 9 stig en liðið hefur leikið fimm leiki í deildinni í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert