Þór/KA vann 1:0 sigur á Selfossi á útivelli í 6. umferð úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni á Jáverk-vellinum á Selfossi í kvöld.
Leikurinn var mjög fjörugur í fyrri hálfleik og nóg af færum. Stephany Mayor kom Þór/KA yfir á 11. mínútu þegar hún fékk sendingu innfyrir frá Láru Kristínu og kláraði færið vel. Bæði lið áttu góðar sóknir í kjölfarið og Selfyssingar fengu betri færi en Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir varði allt sem að marki kom.
Seinni hálfleikurinn var öllu rólegri en sá fyrri, mikil stöðubarátta en burðugar sóknir inn á milli og bæði lið fengu góð færi á fyrstu fimmtán mínútunum. Leikurinn fjaraði hratt út eftir það og liðin sýndu ekki sparihliðarnar eins og í fyrri hálfleik.
Þór/KA er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig, þremur stigum minna en Valur og Breiðablik sem eiga bæði leik til góða á Akureyringa. Selfoss er áfram í áttunda sætinu með 6 stig, líkt og KR, ÍBV, og HK/Víkingur sem öll hafa leikið fimm leiki.