Selfoss styrkti stöðu sína í fjórða sæti

ÍBV og Selfoss áttust við í Eyjum í kvöld.
ÍBV og Selfoss áttust við í Eyjum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Selfoss styrkti stöðu sína í fjórða sæti Pepsi Max-deildar kvenna í knattspyrnu með sterkum útisigri á ÍBV, 1:0. Selfoss er nú með 13 stig, einu minna en Þór/KA sem er í þriðja sæti. ÍBV er í sjötta sæti með níu stig.

Barbára Sól Gísladóttir skoraði sigurmark leiksins strax á 15. mínútu og hún átti svo skalla í þverslá um miðjan síðari hálfleik. Áður hafði Eyjakonan Sigríður Lára Garðarsdóttir skallað í þverslá, en inn vildi boltinn ekki fyrir ÍBV sem hefur nú tapað tveimur leikjum í röð.

Selfoss hefur hins vegar unnið tvo leiki í röð í deildinni.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is, en viðtöl koma inn á vefinn síðar í kvöld.

ÍBV 0:1 Selfoss opna loka
90. mín. Selfoss fær hornspyrnu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert