Knattspyrnudeild Aftureldingar hefur gengið frá samningi við Kelley Johnson, landsliðskonu frá Púertóríkó.
Johnson er 27 ára miðvörður sem lék með East Carolina í bandaríska háskólaboltanum, áður en hún hélt til Svíþjóðar og lék með Skövde í næstefstu deild.
Afturelding hafnaði í fimmta sæti í 1. deild á síðustu leiktíð með 21 stig úr 18 leikjum.