Öllum leikjum sunnudagsins frestað

Breiðablik og KR mætast á mánudagskvöldið en ekki á sunnudag.
Breiðablik og KR mætast á mánudagskvöldið en ekki á sunnudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Öllum fimm leikjunum sem fram áttu að fara í úrvalsdeild karla í fótbolta, Pepsi Max-deildinni, á sunnudaginn hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár.

Þeir verða leiknir á mánudagskvöldið í staðinn og verða  sem hér segir:

ÍA - Grótta kl. 16.30 á Akranesi
Stjarnan - Valur kl. 19.15 í Garðabæ
Fylkir - FH kl. 19.15 í Árbænum
Breiðablik - KR kl. 19.15 á Kópavogsvelli
Víkingur  R. - HK kl. 20 á Víkingsvelli

Eins hafa þrír leikir í 1. deild karla, Lengjudeildinni, verði færðir frá sunnudegi til mánudags en það eru leikir ÍBV - Þór, Keflavík - Þróttur R. og Afturelding - Víkingur Ó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert