Byrjunarlið Íslands: Guðný í hægri bakverði

Guðný Árnadóttir er hægri bakvörður gegn Hollandi.
Guðný Árnadóttir er hægri bakvörður gegn Hollandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðný Árnadóttir er í byrjunarliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Hollandi C-riðli undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í dag.

Sandra Sigurðardóttir er í markinu með þær Guðnýju, Glódísi Perlu Viggósdóttur, Ingibjörgu Sigurðardóttur og Hallberu Guðný Gísladóttur fyrir framan sig.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir eru svo miðjumenn.

Þá eru þær Sveindís Jane Jónsdóttir, Agla María Albertsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir í fremstu víglínu.

Byrjunarlið Íslands:

Sandra Sigurðardóttir
Guðný Árnadóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Agla María Albertsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert