Valur mætir írsku meisturunum

Valskonur mæta Shelbourne frá Írlandi.
Valskonur mæta Shelbourne frá Írlandi. mbl.is/Hákon Pálsson

Íslandsmeistarar Vals mæta írsku meisturunum í Shelbourne í úrslitaleik um sæti í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á sunnudaginn kemur.

Þetta varð ljóst eftir að Shelbourne hafði betur gegn Pomurje frá Slóveníu í dag, 1:0. Hin bandaríska Heather O'Reilly skoraði sigurmarkið strax á 4. mínútu.

Valur hafði betur gegn Armeníumeisturum Hayasa, 2:0, fyrr í dag og tryggði sér þannig sæti í úrslitaleiknum. Leikið er í Slóveníu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert