Breiðablik þarf átta stig

Blikar eru í afar vænlegri stöðu nú þegar deildarkeppninni er …
Blikar eru í afar vænlegri stöðu nú þegar deildarkeppninni er formlega lokið. mbl.is/Óttar Geirsson

Breiðablik þarf í mesta lagi átta stig úr leikjunum fimm á lokaspretti Bestu deildar karla í fótbolta í október til að verða Íslandsmeistari 2022.

Eftir leiki 22. umferðarinnar á laugardag, þegar Blikar unnu ÍBV 3:0, þar sem Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö mörk, á meðan Víkingar misstu 2:0 forskot gegn KR niður í 2:2 jafntefli, er Breiðablik átta stigum á undan Víkingi og KA. Blikar fá þrjá heimaleiki í fimm síðustu umferðunum, eins og reyndar bæði Víkingur og KA.

Blikar fá fyrst Stjörnuna í heimsókn. Síðan fara þeir til Akureyrar þar sem þeir gætu mögulega orðið meistarar með sigri á KA 8. október, eða þá á heimavelli í þriðju umferðinni gegn KR 15. október.

Víkingur og FH mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar 1. október, áður en lokasprettur deildarinnar hefst. Þá liggur fyrir hvort þriðja sætið gefur keppnisrétt í Sambandsdeildinni næsta sumar.

Greinina má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert