Stjarnan deildabikarmeistari 2023

Stjarnan sigraði Þór/KA í úrslitaleiknum eftir vítaspyrnukeppni.
Stjarnan sigraði Þór/KA í úrslitaleiknum eftir vítaspyrnukeppni. mbl.is/Óttar Geirsson

Stjarnan er deildabikarmeistari kvenna í knattspyrnu eft­ir spenn­andi úrslitaleik Lengjubikarsins gegn Þór/KA á Samsung-vellinum í Garðabæ í dag sem endaði í vítaspyrnu­keppni.

Leik­ur­inn endaði 2:2 í venju­leg­um leiktíma og fór því í víta­spyrnu­keppni. Stjarn­an skoraði úr öll­um sín­um vít­um og fékk bik­ar og titil fyr­ir vikið.

 Fyrsta mark leiksins skoraði Sandra María Jessen á 14. mín. eftir stoðsendingu frá Tahnin. Sandra María hitti boltann illa en þrátt fyrir engan kraft í skotinu rúllaði boltinn fram hjá Erin í markinu og inn, 1:0.

Stjarnan jafnaði á 34. mínútu en það var Snædís María Jörundsdóttir sem skoraði markið. Snædís vann boltann úr hápressu og fór svo að markinu og setti hann fram hjá Hörpu  í markinu, 1:1. 

Þór/KA lá í vörn í seinni hálfleik en eftir skyndisókn skorar Hulda Ósk Jónsdóttir eftir skot fyrir utan teig og boltinn sveif í netið og kom gestunum yfir í 2:1.

 Á  76. mínútu fer leikurinn aftur í járn þegar Ólína Ágústa Valdimarsdóttir setti boltann í netið eftir sendingu frá Ölmu Mathiensen. Báðar byrjuðu leikinn á bekknum og var þetta frábær innkoma sem kom Stjörnustelpum í vítaspyrnukeppni en leikurinn endaði 2:2. 

Vítaskyttur Þór/KA voru: Jakobína Hjörvarsdóttir, Sandra María Jessen, Hulda Ósk Jónsdóttir, Tahnai Lauren Annis og Hulda Björg Hannesdóttir. Hulda Ósk skaut yfir en hinar skoruðu.

 Fyrir Stjörnuna voru það: Jasmín Erla Inga­dótt­ir, Heiða Ragney Viðars­dótt­ir, Andrea Mist Pálsdóttir, Alma Mathiesen sem tóku víti og síðasta tók hin 18 ára Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Stjarnan og Þór/KA mætast aftur í Garðabæ í fyrsta leik í Bestu deild þann 26. apríl.

Snædís María Jörundsdóttir jafnaði metin fyrir Stjörnuna.
Snædís María Jörundsdóttir jafnaði metin fyrir Stjörnuna. mbl.is/Óttar Geirsson
Sandra María Jessen skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Þór/KA.
Sandra María Jessen skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Þór/KA. mbl.is/Óttar Geirsson
Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni og Hulda Ósk Jónsdóttir hjá …
Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni og Hulda Ósk Jónsdóttir hjá Þór/KA eigast við. mbl.is/Óttar Geirsson
Stjarnan 7:6 Þór/KA opna loka
90. mín. Stjarnan fær aukaspyrnu og boltinn kemur inn í teig en eftir uppákomu í teignum endar Harpa á stönginni og þarf aðhlinningu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert