Anna og Ólafur íshokkífólk ársins

Anna Sonja Ágústsdóttir úr Skautafélagi Akureyrar og Ólafur Hrafn Björnsson úr Birninum eru íshokkíkona og íshokkímaður ársins 2012 hjá Íshokkísambandi Íslands.

Í tilkynningu frá sambandinu eru eftirfarandi umsagnir um þau tvö:

Anna Sonja Ágústsdóttir er íshokkíkona ársins. Anna Sonja er 24 ára varnarmaður sem leikur með Skautafélagi Akureyrar. Hún hóf að æfa íshokkí sex ára gömul og hefur leikið allan sinn feril með Skautafélagi Akureyrar, að undanskildu einu ári þegar hún lék með Malmö Redhawks í Svíþjóð.

Anna Sonja hefur spilað með öllum landsliðum kvenna sem valin hafa verið á Íslandi frá upphafi. Hún er fyrirliði kvennaliðs Skautafélags Akureyrar sem eru núverandi Deildar- og Íslandsmeistarar.

Anna Sonja er auk þess fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í íshokkí og hefur á tveimur síðastliðnum heimsmeistaramótum, sem liðið tók þátt í, verið valinn besti varnarmaður mótsins.

Anna Sonja er auk þess fyrst til að vera valin íshokkíkona ársins oftar en einu sinni.

Ólafur Hrafn Björnsson er íshokkímaður ársins. Ólafur Hrafn er tvítugur sóknarmaður sem leikur með Birninum í Reykjavík. Björninn er núverandi Íslandsmeistari í íshokkí og er þetta jafnframt fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins.

Ólafur Hrafn hóf ungur að æfa íshokkí í Svíþjóð en hann hefur allan sinn feril leikið þar eða með liði sínu Birninum. Ólafur Hrafn hefur undanfarin ár verið með stiga- og markahæstu leikmönnum á Íslandsmótinu.

Ólafur Hrafn var fyrirliði landsliðs skipað leikmönnum 20 ára og yngri en liðið vann í janúar sl., rétt til þess að leika í 2. deild á komandi tímabili. Að mótinu loknu var Ólafur valinn, af þjálfara liðsins, besti leikmaður íslenska liðsins.

Ólafur Hrafn hefur tvö síðastliðin keppnistímabil átt sæti í karlalandsliði Íslands í íshokkíi en bæði árin hefur liðið toppað sinn besta árangur til þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert