Atli heiðraður hjá Norwich

Atli Barkarson í búningi Norwich.
Atli Barkarson í búningi Norwich. Ljósmynd/Norwich City

Atli Barkarson, átján ára gamall Húsvíkingur, var á dögunum heiðraður fyrir frammistöðu sína í vetur með unglingaliði enska knattspyrnufélagsins Norwich City.

Hann var annar tveggja leikmanna í akademíu félagsins sem voru heiðraðir sérstaklega fyrir frammistöðu sína í lok tímabilsins en Atli hefur verið í röðum Norwich í tæplega tvö ár. Áður spilaði hann frá 15 ára aldri með meistaraflokki Völsungs og á samtals 24 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands. Sjá nánar á vef Norwich.

Aðallið Norwich vann sér á dögunum sæti í úrvalsdeildinni og því hefur verið mikið um dýrðir hjá félaginu og í borginni að undanförnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert